Aðalvalmynd

Tenglar

Ólétta!Höskuldur Þ. Höskuldsson

Já hvað haldiði..mín ástkæra systir er að fara að unga út einu stykki...nú í lok mánaðarins. Því fannst mér tilvalið að taka nokkrar "klisjur" af henni og bumbunni.

Vera og Haffi

Vera

Kveðjur,

Verðandi Móðurbróðir

Félagsfræðin og stríðið gegn hryðjuverkumHöskuldur Þ. Höskuldsson

Ég afsaka þessa ritstíflu sem er búið að hrjá mig síðasta mánuðinn...ég ætlaði fyrir löngu að vera búinn að henda inn einni færslu

Ég ætla að henda inn grein sem birtist í Socialogy Rewiew í október 2007 um tengsl félagsfræðinnar og stríðinu gegn hryðjuverkum. Inn á milli koma síðan mínar vangaveltur, þar sem ég er í rauninni að "ræða" greinina.

 

 

Samkvæmt greininni má skipta vandamálum sem heimurinn stendu frammi fyrir í þrjá megin flokka. Fyrst skal nefna vistfræðileg vandamál, vandræði í efnahagslífinu og síðast en ekki síst eru það hryðjuverkin..

Þetta svokallaða stríð gegn hryðjuverkum er ætlað til þess að koma skikk á samfélagið. Því er haldið fram að félagsfræðin taki ástandinu sem gefnu. Satt best að segja veit ég ekki alveg hvað viðkomandi félagsfræðingur er að fara með þessu. En hann segir að til þess að skilja ástandið betur verði félagsfræðin að taka opnum örmum því ástandi sem er uppi núna, og vera í takt við þá breyttu heimsmynd sem nú er..

Segja má að hryðjuverk hafi það að meginmarkmiði sínu að raska daglegu lífi fólks. Samanber hryðjuverkaárásirnar í New York 11. september. Þetta hafði áhrif á allan heiminn þó sérstaklega Evrópu – fyrir utan Bandaríkin. Eftir þann dag hafa viðmiðin í heiminum breyst og orðið strangari..því nú hefur “alheimslögreglan” Bandaríkin komin í málið. (mín skoðun). Eins og segir í greininni,frelsum Írak. Hvað hafði sú svokallaða barátta þeirra bandaríkjamanna upp á sig..nákvæmlega ekki neitt og eins og segir í greininni, er þetta gert í stríði eða friðarskyni. Ef ég má segja mína skoðun þá er/var stjórn Bush ógn við heimsfriðinn ef svo má segja með þessu mikilmennskubrjálæði. Með þessu ríkir enginn friður. Því er velt upp hvort að það sé hægt að ná fram friði með stríði. Sú hugmynd er nú ekki ný. Segja má að stefna bush hafi leyft þetta. Samt sem áður hafa þessar aðgerðir sem dæmi ýtt hryðjuverkasamtökum á borð við Al – Queda meira neðanjarðar sem er ekkert endilega betra. Það sama má segja um Írak. Þrátt fyrir að Saddam Hussein sé farinn frá völdum ríkir enn mikið ójafnvægi í Írak. Það sama má segja um Guantanamo þar sem föngum er illilega misþyrmt og er haldið þar samkvæmt skipun forseta.

Einnig er bandaríkjastjórn ábyrg fyrir þeirri hryðjuverkahættu hugsun fólks og það sé miklu líklegra að sú hugsun aukist fremur en að bandarískur almenningur verði fyrir persónulegum skaða hryðjuverkaárása.

Með þessu hryðjuverkatali sínu hefur Bandarískaríkisstjórnin ýtt undir hræðslu almennings í landinu..

(Mín skoðun)   Svo við komum aðeins inn á áhrif fjölmiðlana þá er það bara þannig því miður að við vesturlandabúar fáum bara að sjá hlið bandaríkjanna...en ekki heilu-myndina...um hvernig þetta sé í raun og veru. Segja má að þessi fréttafluttningur sé einskonar áróður Bandaríkjanna gegn aröbun – látum þá nú koma illa út. Þar sem jú fréttamenn eru í fylgd með bandrískum hermönnum. Þá er það kannski ekkert skrítið að menn sjái bara eina hlið eins og kemur fram í greininni.

Sumir félagsfræðingar segja að stríðið gegn hryðjuverkum sé eins konar “siðfágunar” aðferð og að Bush sé í rauninni að staðfesta það. Þá kemur ein spurning frá mér. Hvað er svona siðfágað við það að svara drápi með drápi? Það er spurningin. Var t.d. ekki bara nóg að fara dómstóla leiðinni með Saddam Hussein og láta það bara duga plús það að bandaríkjamenn höfðu engar sannanir fyrir því að þeir væru með gjereyðingarvopn undir höndum. En nei þá reyna þeir að koma með aðrar huldar ástæður. Það sem þeir voru í rauninni að gera þá sóttust þeir eftir olíu. En réttlætir það manndráp á saklausum borgurum?

Mín tilfinning er sú að framganga vesturveldanna er svo hrikalega yfirgengileg og þessi sjálfskipaði alheimslögreglustimpill sé rísa þeim til höfuðs. Erum við jarðarbúar eitthvað betur settir ef að vesturveldin væru með öll þau gereyðingarvopn undir sínum hatti. Myndi það ekki frekar ýta undir þeirra völd enn frekar.

Það má vel vera að ég sé að steypa hérna.

 

-H

Nýju Bandaríkin?Höskuldur Þ. Höskuldsson

Ég hef öðlast trú á bandrísku þjóðfélagi á ný. Ég tel að bandaríska  þjóðin hafi breytt rétt. Maður, talsmaður minnihlutahópa sigraði. Ég tel reyndar að Mccain hafi skotið sig í fótinn alveg frá byrjun og þessi kostningabarátta hans hafi endanlega floppað með tilnefningu Söruh Pallin sem varaforsetaefni flokksins.
Plús það að Mccain "neyddist" til þess að fara mun lengra til hægri en hann hafi kosið sökum þrýstings frá samflokksmönnum.
Auk þess finnast mér sjónarmið Obama manneskjulegri og í takt við samfélagið.

Morri@Hljomalind

Hljómsveitin Morri á tónleikum 19. september síðastliðnum.

Iceland AirwavesHöskuldur Þ. Höskuldsson

Jæja, Airwaves hátíðin búin í ár sem betur fer. Það sem ég sá var hreint út sagt slakt....en eins og einn félagi minn sagði: "það er alltof mikið að krúttböndum" túlkið það eins og þið viljið..ég er að sama skapi þakklátur fyrir það að hafa fengið að vinna með Grapevine og IMX....vonandi get ég komið mér þar að á næsta ári einnig. Gott að fá smá aur á þessum síðustu og verstu tímum. Einnig það að fá að vinna við eitthvað sem er skemmtilegt....eitthvað sem þú hefur ástríðu fyrir. Því oft er það nú þannig að fólk velst inní störf sem það hefur engan áhuga á að sinna. En það hefur eflaust sína galla líka að gera áhugamálið hjá sér að atvinnu. En ég held þar sem ljósmyndunin er það fjölbreytileg að fólk á síður á hættu að fá leið á henni. Þó vissulega að hún geti verið þreytandi. Allir þeir sem hafa kost á því að starfa við eitt af áhugamálum sínum..Just go for it.

En allavega þá ætla ég að enda á þeim böndum sem mér fannst koma vel út:

Fyrst má nefna:

GAVIN PORTLAND

Eitt af þeim metnaðarfyllri böndum sem þú finnur á klakanum í dag.

Gavin Portland




























AGENT FRESCO

Komu mér verulega á óvart.

Agent Fresco




























Rökkuró

Rokkuro

og ekki má gleyma:

Óla

Oli

 


























...og Celestine

Þetta eru þeir listamenn sem ég tel að hafi staðið upp úr.

___________________

Þá er það komið að því að útnefna leiðinlegustu listamenn hátíðarinnar, en þeir eru því miður allir meðlimir í Sprengjuhöllinni....ekkert persónulegt drengir mínir,smekkur manna er misjafn

Out

Ólafur ArnaldsHöskuldur Þ. Höskuldsson

Mig langaði bara að deila með ykkur tveimur myndum úr tökum sem ég átti með kappanum



Óli
_________________

Fyrir áhugasama þá er hægt að finna tóndæmi á:
www.olafurarnalds.com

Heavymetal In BagdadHöskuldur Þ. Höskuldsson

 

Ég skellti mér á RIFF - hátíðina nú á dögunum og sá myndirnar Bomb it og Heavymetal In Bagdad.

 

Mig langar til þess að fjalla örlítið um hina síðarnefndu.

Myndin fjallar um 5 Íraka sem eiga það sameiginlegt að vera tónlistarmenn og bandið þeirra það eina active-a í þessum flokki í landinu.

Fylgst er með þeim yfir ákveðið tímabil, nokkur ár.

Það sem gerði þessa mynd áhugaverðari að mínu mati var það hvernig tónlistin varð eiginlega að aukaatriði. Það var meira verið að fylgjast með hinu daglega lífi hins “venjulega” Íraka” þó svo að tónlistin ætti sinn sess í myndinni.

Það var áhugavert að sjá einhvern annan vinkil á það sem er að gerast í Írak. Það sem er í rauninni að gerast, ekki einhvern terrorista-áróður frá Bandaríkjunum. Sem er nánast það eina sem við vesturlandabúar fáum að heyra frá þessu svæði.

Eftir að hafa horft á þessa mynd sé ég að múslimar eru ekkert öðruvísi en við vesturlandabúar.

Það er einungis lítil prósenta af heildinni sem vinna undir merkjum “Jíhad”.

Og hvað er málið með að halda því fram að kristni sé það eina rétta. Er þetta ekki svona í öllum trúarbrögðum. Ég hefði nú haldið það.

 

En allavega...við fáum að fylgjast með þróuninni í landinu. Sem dæmi undir það síðasta þurftu kvikmyndagerðarmennirnir að klæðast skotheldum vestum þegar þeir komu inn í landið. Svo mikil áhætta var þetta.

Annað gott dæmi um ástandið þarna t.d. fólk sem býr í 20 mínútna fjarlægð frá hvort öðru, í þessu tilviki tveir góðir vinir sem höfðu ekki sést í um 6 mánuði sökum hræðslu um að vera skotnir.

 

Segið mér svo að það hafi verið viturlegt af “alheimslögreglunni” Bandaríkjunum að fara inn í Írak á sínum tíma.

Að mínu mati eru það þeir sem eru að ógna heimsfriðnum.

 

Gerði ástandið verra ef að eitthvað er.

 

Ég hugsa að ég endi þessa færslu á tilvitnun úr myndinni þegar ungur drengur var spurður út í það hvort að hann ætlaði sér ekki að flyja ástandið. Hann sagðist ekki getað farið neitt, það er að segja til Bandaríkjana – Evrópu sökum þjóðernis síns.

Það sem hann sagði var:

 

“Is that a crime being a Iraqui”

 

_____________________________

 

Die Young H

 

Die Young í Hljómalind á dögunum.

Á mörkum ADHDHöskuldur Þ. Höskuldsson

Það hlaut að vera. Þetta er staðfest, ég er á mörkum ADHD

Results of your
Attention Deficit Disorder Quiz

You scored a total of  27

You appear to experiencing some type of attention and concentration problems which are often common amongst the general population, but border on the possibility of being more severe. It is unclear as to whether you suffer these problems severely enough to need to seek further diagnosis and treatment of them. You should not take your responses to this self-report questionnaire as a diagnosis or recommendation for treatment of any sort. Consult with a trained mental health professional if you are experiencing difficulties in your daily functioning that you are worried about.

Borderline ADHD



Gunnar Þorsteinsson og ÍslamshaturHöskuldur Þ. Höskuldsson

Sælt veri fólkið...langt síðan síðast

Það vakti furðu mína, þau ummæli Gunnars í Krossinum um það hvort að það ætti að byggja mosku fyrir trúariðkun múslima hér á landi.
Hann segir eitthvað á þá leið: Það að byggja mosku á Íslandi er væri afar slæm hugmynd þar sem þetta væri bara hreiður undir hryðjuverkastarfsemi. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. En þetta heyrði maður í útvarpsþættinum Harmageddon á X-inu.

Nú spyr ég. Er þetta ekki hámark fáfræðarinnar? Að maður skuli hafa látið þetta út úr sér finnst mér afar áhættusamt þar sem hann segir sjálfur á bloggsíðu sinni að Guð fari ekki í manngreinarálit...heldur eigi að sýna öllum umburðarlyndi.

Þarna skarast hugmyndir hans og kristninnar á. Má það?
Vissulega eru til öfgafullir múslimar en þeir eru í miklum minnihluta. En þekkist þetta ekki líka í kristni? Hvað með Kuklux klan sem dæmi  Eru þeir betri?

Ég held að menn séu nú farnir að vera með hausunn á sér full mikið upp í sínum rassi

___________________________________________


Ég ætla samt að enda þessa færslu á jákvæðu nótunum...

Sleep Like An Angry@hljomalind

Maður virðist vera kominn í mjúkinn hjá Grapevine - Piltunum...og ég þakka þeim kærlega fyrir það.
Indælir piltar...

Tekin í Hljómalind á dögunum.

Sarah nokkur PallinHöskuldur Þ. Höskuldsson

Mig langar að spyrja, Er þessi manneskja nokkuð frá miðöldum? Ef  ekki þá ætti hún að vera það  samkvæmt þessum brengluðu skoðunum sem hún hefur....þetta myndi án efa passa betur þar.
En þar sem við erum uppi á 21. öldinni þá finnst mér þetta bara svo óendanlega súrt að manneskja skuli standa svona fast á þessu

Á móti fóstureyðingum nauðgunarfórnarlamba
Með dauðarefsingum.

Þarf að segja meira?

__________________

En annars vil ég kasta lofi mínu á piltana í Gavin Portland fyrir að vera eitt af þeim böndum sem leggja mikið í það sem þeir eru að skapa. Metnaðurinn hjá strákunum skín í gegn...sem er ekkert nema gott mál og ég hlakka til að fá gripinn í hendurnar.

Gavin@caferot

Gavin Portland á Kaffi rót í síðasta mánuði

SjálfhverfaHöskuldur Þ. Höskuldsson

Ég ereinhvernveginn orðinn mjög meðvitaður um sjálfan mig. Ég get bent á kosti mína og galla og hverju ég þarf að vinna í til þess að gera mig að betri manneskju en ég einhvernveginn held áfram að reka mig á. Þá einna helst á ég það til að vera einum of sjálfhverfur stundum og málið er að ég er fullkomlega meðvitaður um það og er að vinna í draga úr þessum galla mínum. Hinsvegar gengur það misvel. Og þar sem ég á sjálfur mjög erfitt með að umbera sjálfhverft fólk, þá er þetta vissulega mjög skrítið að átta sig á því að maður getur dottið í það að vera svona sjálfur...þó að þetta sé ekki mikið þá kemur það fyrir.

Dys@kaffirot

Pönksveitin Dys á Tónleikum á Kaffi rót fyrr í Mánuðinum.
Síða 1 af 4

Gagnasafn

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

Leit