hoskarinn.bloggar.is
SjálfhverfaHöskuldur Þ. Höskuldsson
Ég ereinhvernveginn orðinn mjög meðvitaður um sjálfan mig. Ég get bent á kosti mína og galla og hverju ég þarf að vinna í til þess að gera mig að betri manneskju en ég einhvernveginn held áfram að reka mig á. Þá einna helst á ég það til að vera einum of sjálfhverfur stundum og málið er að ég er fullkomlega meðvitaður um það og er að vinna í draga úr þessum galla mínum. Hinsvegar gengur það misvel. Og þar sem ég á sjálfur mjög erfitt með að umbera sjálfhverft fólk, þá er þetta vissulega mjög skrítið að átta sig á því að maður getur dottið í það að vera svona sjálfur...þó að þetta sé ekki mikið þá kemur það fyrir.
Pönksveitin Dys á Tónleikum á Kaffi rót fyrr í Mánuðinum.