Aðalvalmynd

Tenglar

Heavymetal In BagdadHöskuldur Þ. Höskuldsson

 

Ég skellti mér á RIFF - hátíðina nú á dögunum og sá myndirnar Bomb it og Heavymetal In Bagdad.

 

Mig langar til þess að fjalla örlítið um hina síðarnefndu.

Myndin fjallar um 5 Íraka sem eiga það sameiginlegt að vera tónlistarmenn og bandið þeirra það eina active-a í þessum flokki í landinu.

Fylgst er með þeim yfir ákveðið tímabil, nokkur ár.

Það sem gerði þessa mynd áhugaverðari að mínu mati var það hvernig tónlistin varð eiginlega að aukaatriði. Það var meira verið að fylgjast með hinu daglega lífi hins “venjulega” Íraka” þó svo að tónlistin ætti sinn sess í myndinni.

Það var áhugavert að sjá einhvern annan vinkil á það sem er að gerast í Írak. Það sem er í rauninni að gerast, ekki einhvern terrorista-áróður frá Bandaríkjunum. Sem er nánast það eina sem við vesturlandabúar fáum að heyra frá þessu svæði.

Eftir að hafa horft á þessa mynd sé ég að múslimar eru ekkert öðruvísi en við vesturlandabúar.

Það er einungis lítil prósenta af heildinni sem vinna undir merkjum “Jíhad”.

Og hvað er málið með að halda því fram að kristni sé það eina rétta. Er þetta ekki svona í öllum trúarbrögðum. Ég hefði nú haldið það.

 

En allavega...við fáum að fylgjast með þróuninni í landinu. Sem dæmi undir það síðasta þurftu kvikmyndagerðarmennirnir að klæðast skotheldum vestum þegar þeir komu inn í landið. Svo mikil áhætta var þetta.

Annað gott dæmi um ástandið þarna t.d. fólk sem býr í 20 mínútna fjarlægð frá hvort öðru, í þessu tilviki tveir góðir vinir sem höfðu ekki sést í um 6 mánuði sökum hræðslu um að vera skotnir.

 

Segið mér svo að það hafi verið viturlegt af “alheimslögreglunni” Bandaríkjunum að fara inn í Írak á sínum tíma.

Að mínu mati eru það þeir sem eru að ógna heimsfriðnum.

 

Gerði ástandið verra ef að eitthvað er.

 

Ég hugsa að ég endi þessa færslu á tilvitnun úr myndinni þegar ungur drengur var spurður út í það hvort að hann ætlaði sér ekki að flyja ástandið. Hann sagðist ekki getað farið neitt, það er að segja til Bandaríkjana – Evrópu sökum þjóðernis síns.

Það sem hann sagði var:

 

“Is that a crime being a Iraqui”

 

_____________________________

 

Die Young H

 

Die Young í Hljómalind á dögunum.

Skrifa athugasemd

Gagnasafn

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

Leit