Aðalvalmynd

Tenglar

Félagsfræðin og stríðið gegn hryðjuverkumHöskuldur Þ. Höskuldsson

Ég afsaka þessa ritstíflu sem er búið að hrjá mig síðasta mánuðinn...ég ætlaði fyrir löngu að vera búinn að henda inn einni færslu

Ég ætla að henda inn grein sem birtist í Socialogy Rewiew í október 2007 um tengsl félagsfræðinnar og stríðinu gegn hryðjuverkum. Inn á milli koma síðan mínar vangaveltur, þar sem ég er í rauninni að "ræða" greinina.

 

 

Samkvæmt greininni má skipta vandamálum sem heimurinn stendu frammi fyrir í þrjá megin flokka. Fyrst skal nefna vistfræðileg vandamál, vandræði í efnahagslífinu og síðast en ekki síst eru það hryðjuverkin..

Þetta svokallaða stríð gegn hryðjuverkum er ætlað til þess að koma skikk á samfélagið. Því er haldið fram að félagsfræðin taki ástandinu sem gefnu. Satt best að segja veit ég ekki alveg hvað viðkomandi félagsfræðingur er að fara með þessu. En hann segir að til þess að skilja ástandið betur verði félagsfræðin að taka opnum örmum því ástandi sem er uppi núna, og vera í takt við þá breyttu heimsmynd sem nú er..

Segja má að hryðjuverk hafi það að meginmarkmiði sínu að raska daglegu lífi fólks. Samanber hryðjuverkaárásirnar í New York 11. september. Þetta hafði áhrif á allan heiminn þó sérstaklega Evrópu – fyrir utan Bandaríkin. Eftir þann dag hafa viðmiðin í heiminum breyst og orðið strangari..því nú hefur “alheimslögreglan” Bandaríkin komin í málið. (mín skoðun). Eins og segir í greininni,frelsum Írak. Hvað hafði sú svokallaða barátta þeirra bandaríkjamanna upp á sig..nákvæmlega ekki neitt og eins og segir í greininni, er þetta gert í stríði eða friðarskyni. Ef ég má segja mína skoðun þá er/var stjórn Bush ógn við heimsfriðinn ef svo má segja með þessu mikilmennskubrjálæði. Með þessu ríkir enginn friður. Því er velt upp hvort að það sé hægt að ná fram friði með stríði. Sú hugmynd er nú ekki ný. Segja má að stefna bush hafi leyft þetta. Samt sem áður hafa þessar aðgerðir sem dæmi ýtt hryðjuverkasamtökum á borð við Al – Queda meira neðanjarðar sem er ekkert endilega betra. Það sama má segja um Írak. Þrátt fyrir að Saddam Hussein sé farinn frá völdum ríkir enn mikið ójafnvægi í Írak. Það sama má segja um Guantanamo þar sem föngum er illilega misþyrmt og er haldið þar samkvæmt skipun forseta.

Einnig er bandaríkjastjórn ábyrg fyrir þeirri hryðjuverkahættu hugsun fólks og það sé miklu líklegra að sú hugsun aukist fremur en að bandarískur almenningur verði fyrir persónulegum skaða hryðjuverkaárása.

Með þessu hryðjuverkatali sínu hefur Bandarískaríkisstjórnin ýtt undir hræðslu almennings í landinu..

(Mín skoðun)   Svo við komum aðeins inn á áhrif fjölmiðlana þá er það bara þannig því miður að við vesturlandabúar fáum bara að sjá hlið bandaríkjanna...en ekki heilu-myndina...um hvernig þetta sé í raun og veru. Segja má að þessi fréttafluttningur sé einskonar áróður Bandaríkjanna gegn aröbun – látum þá nú koma illa út. Þar sem jú fréttamenn eru í fylgd með bandrískum hermönnum. Þá er það kannski ekkert skrítið að menn sjái bara eina hlið eins og kemur fram í greininni.

Sumir félagsfræðingar segja að stríðið gegn hryðjuverkum sé eins konar “siðfágunar” aðferð og að Bush sé í rauninni að staðfesta það. Þá kemur ein spurning frá mér. Hvað er svona siðfágað við það að svara drápi með drápi? Það er spurningin. Var t.d. ekki bara nóg að fara dómstóla leiðinni með Saddam Hussein og láta það bara duga plús það að bandaríkjamenn höfðu engar sannanir fyrir því að þeir væru með gjereyðingarvopn undir höndum. En nei þá reyna þeir að koma með aðrar huldar ástæður. Það sem þeir voru í rauninni að gera þá sóttust þeir eftir olíu. En réttlætir það manndráp á saklausum borgurum?

Mín tilfinning er sú að framganga vesturveldanna er svo hrikalega yfirgengileg og þessi sjálfskipaði alheimslögreglustimpill sé rísa þeim til höfuðs. Erum við jarðarbúar eitthvað betur settir ef að vesturveldin væru með öll þau gereyðingarvopn undir sínum hatti. Myndi það ekki frekar ýta undir þeirra völd enn frekar.

Það má vel vera að ég sé að steypa hérna.

 

-H

Skrifa athugasemd

Gagnasafn

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

Leit