Aðalvalmynd

Tenglar

Athyglisbrestur?Höskuldur Þ. Höskuldsson

Ég hef verið að hugsa mikið um þetta síðustu daga þar sem ég hef verið upptekinn í próflestri. Málið er bara það að ég á erfitt með að halda mér að bókunum...þarf stöðugt að vera að gera eitthvað...hugurinn kominn eitthvað allt annað eftir smá tíma. Ég á erfitt með að sitja kyrr á sama stað í langan tíma.

Ég hef reyndar velt því fyrir mér hvort að þetta gæti tengst veikindunum á einhvern hátt þar sem einbeitingin er ekki uppá sitt besta.

Mynd dagsins:

Hrafnaþing á Andspyrnu

ÚtskriftarsýningHöskuldur Þ. Höskuldsson

Útskriftarsýning margmiðlunarhönnunanema í Borgarholtsskóla opnar föstudaginn 9. maí kl. 16:00. Mjög svo áhugaverð sýning þarna á ferðinni og nokkur verk þarna sem vert er að skoða. Og þar sem ég er að útskrifast úr margmiðlunarhönnuninni þá verð ég með lokaverkefni mitt til sýniss.

Allir velkomnir, sýningin stendur til 12. maí.
Sýningin verður upp í skóla.

City hall in reykjavik

Hluti af lokaverkefninu mínu

FélagsfælniHöskuldur Þ. Höskuldsson

Ég ætla að byrja þessa færslu á því að lýsa yfir frati á sjálfan mig. Ég er engan veginn að standa mig.
Ég held að þetta hafi eitthvað með félagsfælni að gera sem lýsir sér best í því að ég geri ekki þá hluti sem ég var vanur að gera og hafði mikið yndi af. Sem dæmi er komið sirka eitt og hálft ár síðan ég fór á tónleika síðast. Ég held að þetta sé nú meiri hræðsla en nokkuð annað við það að þurfa að face-a alla aftur.Ég er að vinna í þessu,tekur bara tíma. Ég hef ekki myndað á tónleikum síðan á Airwaves 2006 sem mér þykir leiðinlegt þar sem ég var vanur að mæta með cameruna allstaðar.En ég held að  veikindin eigi  stóran þátt í þessari vanvirkni minni. Þetta krefst mikillar þolinmæði og vinnu. Maður þarf stöðugt að vera á varbergi gagnvart þessum sjúkdómi til þess að halda manni réttu megin við strikið. En sem betur fer tel ég mig þekkja þennan djöful það vel núna og veit því hvernig hann virkar.

Eins og í gær þá ætla ég að enda þessa færslu á mynd af þessari margrómuðu sýningu minni

Hot Club De Paris on Air

Life Before DeathHöskuldur Þ. Höskuldsson

Ég rakst á ansi áhugavert ljósmyndaverkefni þar sem þýski ljósmyndarinn Walter Schels tekur Portrait myndir af fólki sem eru ef svo má segja að bíða eftir dauðanum. Hann tekur þetta verkefni einu skrefi lengra þar sem hann tekur síðan myndir af fólkinu þegar það er nýlátið. Einnig fær hann aðstoð blaðamanns sem vann að þessu með honum með því að taka viðtal við fólkið og fá smá sögu með hverri mynd
Seríuna má finna hér: www. http://www.guardian.co.uk/society/gallery/2008/mar/31/lifebeforedeath?picture=333325401



Þetta verkefni minnir sjálfan mig á þegar ég var í þessum sömu pælingum með að gera svona seríu sjálfur..en ég einhvernveginn lét aldrei verða af því, þar sem mér finnst dauðinn vera fallegt fyrirbæri. Segja má að eftir að ég veiktíst fyrir um það bil ári þá hef ég í rauninni sannfærst enn meira um það...þar sem ég upplifði mig vera að deyja og í rauninni langaði mig til þess á tímabili. Þessi reynsla mín sem ég gekk í gegnum er samt eitthvað sem ég hefði ekki viljað sleppa því núna hef ég öðlast ákveðið æðruleysi gagnvart dauðanum.

Ég ætla að enda þessa færslu á því að henda inn mynd af sýningunni minni

Hölt Hóra á Airwaves 2005

List án Landamæra-LjósmyndasýningHöskuldur Þ. Höskuldsson

Hvað er að gerast eiginlega..Hössi af öllum mönnum kominn með blogg...ótrúlegt.

...Ég hef ákveiðið að skella myndunum af sýningunni sem ég hélt um daginn(List án landamæra) hingað inn. Vonandi að þið Njótið(ein mynd á dag)

Annars hafði ég hugsað mér að hafa bloggið frekar ljósmyndatengt...það er að segja mínar pælingar varðandi þau verkefni sem ég er að fara af stað með.

tónleikar finnland




Síða 4 af 4

Gagnasafn

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

Leit